|
Um fjarnám, í stuttu máli:
Skólaárinu er skipt upp í tvær annir, vorönn 25. janúar - 25. maí og haustönn 1. september - 15. desember. Innritun á námskeið lýkur 5 dögum áður en kennsla hefst.
Vegna eðlis fjarnáms þarf að greiða þátttökugjaldið áður en námskeið hefst. Skólagjöld/þátttökugjöld eru ekki endurgreidd, en nemendur geta átt þess kost að endursitja nám. Skráðir þátttakendur sem einhverra hluta vegna þurfa að gera hlé á námi t.d. vegna veikinda geta frestað náminu í allt að 12 mánuði.
Að hefja fjarnám er á margan hátt frábrugðið því að hefja staðbundið nám. Bæði hvað snýr að nemandanum sjálfum og eins þeim sem næst standa, hvort heldur það er fjölskylda, vinir eða vinnufélagar. Fjarnám gerir ýmsar aðrar kröfur til nemandans en staðbundið nám.
Í fjarnámi felst að þátttakandinn mætir ekki á ákveðnum tíma í kennslustofu til þess að njóta kennslu heldur er notaður kennsluvefur og gagnvirk kennsluforrit til þess að fá námsefnið, hafa samskipti við kennarann og aðra þátttakendur og sækja ítarefni eftir þörfum.
Vegna þessa fyrirkomulags getur þú stundað námið þegar þér hentar og ert ekki bundin(n) af landfræðilegri staðsetningu sem þýðir einfaldlega að hægt er að stunda fjarnámið hvar sem er í heiminum svo fremi að aðgangur sé að internetinu.
|