Grunnnámskeið í bókfærslu.
Námskeiðið er ætlað þeim sem litla sem enga undirstöðu hafa í bókfærslu.
Hvað er bókfærsla? Bókfærsla er skráning á viðskiptum fyrirtækja með skipulögðum hætti í þar til gerðar bækur. Bókhald eru þær bækur sem viðskiptin eru skráð í ásamt þeim gögnum sem fyrirtæki varðveita um viðskiptin.
Tilgangur bókfærslu er tvíþættur:
- Að gera eigendum fyrirtækja kleift að sjá hverjar eignir þess og skuldir eru á hverjum tíma.
- Að gera eigendum kleift að sjá hver rekstrarafkoman er yfir tiltekið tímabil, þ.e. hvort hagnaður eða tap hefur orðið af rekstrinum.
Fyrra atriðið varðar efnahag fyrirtækja. Skýrar upplýsingar verða ávallt að liggja fyrir um eigna- og skuldastöðu fyrirtækja annars geta þau t.d. lent í greiðsluerfiðleikum. Ítarleg vitneskja um efnahaginn á hverjum tíma veitir stjórnendum tækifæri til þess að taka ákvarðanir til að afstýra slíku.
Seinna atriðið varðar rekstur fyrirtækja. Upplýsingar um rekstrarafkomu eru mikilvægar varðandi ákvarðanatöku um framhald rekstursins. Ef tap er af rekstri fyrirtækisins og það er útlit fyrir að um tap verði að ræða í nánustu framtíð þá gæti það verið betri kostur fyrir eigendur fyrirtækis og hætta rekstri og snúa sér að öðrum rekstri sem er arðbærari.
Einungis þau fyrirtæki sem hafa tekjur umfram kostnað eru arðbær. Mismunurinn er hagnaður.
Í lok rekstrartímabils, sem getur t.d. verið mánuður, tveir mánuði, ársfjórðungur, hálft ár eða heilt ár, er gert upp og unnin úr bókhaldinu tvö yfirlit sem annars vegar upplýsa um rekstrarafkomuna og hins vegar um efnahagslega stöðu fyrirtækisins í lok tímabilsins. Þessi yfirlit eru rekstrarreikningur og efnahagsreikningur. Lengd námskeiðsins samsvarar 30 kennslustundum.
Verð kr. 18.000.- stgr.
Vegna eðlis fjarnáms þarf að greiða þátttökugjaldið áður en námskeið hefst. Skólagjöld/þátttökugjöld eru ekki endurgreidd, en nemendur geta átt þess kost að endursitja nám. Skráðir þátttakendur sem einhverra hluta vegna þurfa að gera hlé á námi t.d. vegna veikinda geta frestað náminu í allt að 12 mánuði.
|