Námskeiðsflokkar.:


Vefhýsing

Pottþétt vefhýsing á frábæru verði !!!

Tölvutækni
þetta námskeið krefst innskráningarlykils
Markmið
Markmið A+ námsbrautarinnar eru að þátttakendur:
  • verði færir um að sjá um uppsetningu, stillingar og uppfærslur á tölvubúnaði
  • verði færir um að villuleita bilanir og framkvæma greiningar á vélbúnaði
  • geti borið kennsl á yfirvofandi vandamál, einangrun þeirra og framkvæmt forvarnir
  • geti þekkt kerfishluta, tengingar, íhluti, hugtök og fleira sem fylgir tölvubúnaði
  • þekki virkni prentara, netkerfa, mótalda og fleiri jaðartækja
  • verði færir um að þekkja möguleika ýmissa stýrikerfa, virkni þeirra, stillingar og villuleit
  • þekki uppbyggingu ýmissa stýrikerfa, aðferðir við skjalavinnslu og meðferð gagna.
  • geti sett upp, stillt og uppfært stýrikerfi
  • þekki aðferðir við uppsetningar á stýrikerfum, uppfærsluskref, ræsiröð, reklar.
  • geti framkvæmt greiningar og villuleit á stýrikerfum
  • læri að bera kennsl á og leiðrétta algenga villukóða, skilaboð og vandamál
  • læri að þekkja möguleika Windows netkerfa, netstillingar, internethugtök og uppsetningar.
Undirbúningur fyrir TÖK / ECDL
þetta námskeið krefst innskráningarlykils

Námskeið til undirbúnings TÖK/ECDL prófa.
Námskeiðið samsvarar 110 kennslustundum og kostar kr. 44.000.- stgr 

TÖK - Tölvuökuskírteini er lausnin!Tölvuökuskírteinið, skammstafað TÖK, er alþjóðlegt skírteini sem segir til um ákveðna tölvukunnáttu handhafa þess.Þrepin á toppinn - Evrópskt hæfnisskírteini!
Þrepin á toppinn eru sjö, sem þú getur tekið á þínum hraða, í þeirri röð sem þú kýst en þó innan þriggja ára. Fyrst til að byrja með færð þú hæfnisskírteini hjá viðurkenndri prófamiðstöð. Hæfnisskírteininu er skipt niður í sjö hluta sem taka þarf próf í. Þegar þú hefur tekið próf í einhverjum hlutanum og staðist þá færð þú stimpil í hæfnisskírteinið.Þegar þú hefur safnað öllum stimplunum sjö þá snýrð þú þér til Skýrslutæknifélags Íslands og færð útgefið Tölvuökuskírteini án endurgjalds. Takmarkið er að fá sjö stimpla í hæfnisskírteininu fyrir

1. Grunnatriði upplýsingatækninnar

2. Tölvan og stýrikerfi hennar

3. Ritvinnsla - Word

4. Töflureiknir - Excel

5.
Gagnagrunnskerfi - Access

6. Framsetning á kynningarefni - Power point

7. Internetið

TölvuökuskírteiniðTÖK

Grunnatriði upplýsingatækninnar er fyrst og fremst fræðilegur hluti en allir hinir eru verklegir og notast þátttakendur þá við tölvur í prófunum. Prófin byggjast á tilviljanakenndu vali spurninga sem fjalla um tölvunotkun frá degi til dags. Spurningarnar eru hagnýtar og þar af leiðandi er stimpillinn raunveruleg staðfesting á því sem þú kannt. Taka má prófin í þeirri röð sem hentar hverjum og einum. Ekki er nauðsynlegt að sitja námskeið áður en þú tekur prófin. Ef þú telur þig hafa næga þekkingu á einhverjum fyrrgreindra þátta þá getur þú snúið þér beint til prófmiðstöðvanna og fengið að taka próf án þess að fara á námskeið.

Tölvufræðslan - heimanam.is býður nú upp á námskeið í fjarnámi til undirbúnings TÖK/ECDL allra prófanna 7. - Námskeiðið samsvarar 110 kennslustundum og kostar kr. 44.000.- stgr. Próftökur ekki innifaldar en þær kosta að jafnaði kr. 3000.- hvert próf á Íslandi. Prófamiðstöðvar í Evrópu

Nemendur hafa allt að 12 mánuði til að ljúka námskeiðinu.

Þarf að taka öll prófin?
Til að fá TÖK-skírteinið þá þarf að hafa alla sjö stimplana í hæfnisskírteininu. Hins vegar getur þörf fólks fyrir staðfestingu á tölvukunnáttu verið mismunandi. Margir gætu viljað öðlast ákveðna staðfestingu á t.d. ritvinnslu þrepinu og töflureikni í stað þess að taka allan pakkann. Hver stimpill í hæfnisskírteininu er fullgildur sem slíkur. Prófin sjö sem þarf að taka til að öðlast TÖK-skírteini eru stöðluð um alla Evrópu. Vinnandi fólk í Evrópu og fólk í atvinnuleit er sammála um að nauðsynlegt sé að hafa staðal sem segir til um raunverulega færni fólks í upplýsingatækni. Tölvuökuskírteinið er þýðing og stytting á enska heitinu European Computer Driving Licence, skammstafað ECDL. Mörg fyrirtæki og stofnanir í Evrópu hafa sett það sem skilyrði að starfsmenn þeirra hafi tölvuökuskírteinið. Það auðveldar ráðningu starfsmanna til fyrirtækja, þar sem tölvukunnátta þeirra liggur ljós fyrir. Annað hvort hafa umsækjendur TÖK-skírteini eða ekki.

Námskeiðið samsvarar 110 kennslustundum og kostar kr. 44.000.- stgr

Heimasíða ECDL Foundation