Tölvutækni
(A+)

 þetta námskeið krefst innskráningarlykils


Markmið
Markmið A+ námsbrautarinnar eru að þátttakendur:
  • verði færir um að sjá um uppsetningu, stillingar og uppfærslur á tölvubúnaði
  • verði færir um að villuleita bilanir og framkvæma greiningar á vélbúnaði
  • geti borið kennsl á yfirvofandi vandamál, einangrun þeirra og framkvæmt forvarnir
  • geti þekkt kerfishluta, tengingar, íhluti, hugtök og fleira sem fylgir tölvubúnaði
  • þekki virkni prentara, netkerfa, mótalda og fleiri jaðartækja
  • verði færir um að þekkja möguleika ýmissa stýrikerfa, virkni þeirra, stillingar og villuleit
  • þekki uppbyggingu ýmissa stýrikerfa, aðferðir við skjalavinnslu og meðferð gagna.
  • geti sett upp, stillt og uppfært stýrikerfi
  • þekki aðferðir við uppsetningar á stýrikerfum, uppfærsluskref, ræsiröð, reklar.
  • geti framkvæmt greiningar og villuleit á stýrikerfum
  • læri að bera kennsl á og leiðrétta algenga villukóða, skilaboð og vandamál
  • læri að þekkja möguleika Windows netkerfa, netstillingar, internethugtök og uppsetningar.