Bókhald- og skattskil. Eingöngu kennt í fjarnámi.
Markmið:
Að skapa trausta þekkingu á bókhalds og skattamálum. Nemendur öðlist
skilning á bókhaldi, meðferð fylgiskjala og helstu skattareglum.
Nemendur læri að nota tölvubókhald og geti að námi loknu fært bókhald og
annast staðgreiðslu og virðisaukaskattskili rekstraraðila. Nemendum
einnig kynnt hvernig telja skal fram til skatts fyrir einstakling með
rekstur.
Fyrir hverja:
Námskeiðið hentar þeim sem áhuga hafa á að starfa við bókhald sem og
einstaklingum með eigin rekstur sem vilja sem mest annast sjálfir sín
bókhalds og skattamál. Nauðsynleg undirstaða er grunnþekking á Excel.
Atriði sem tekin verða fyrir
• Markmið með færslu bókhalds.
• Bókhald sem stjórntæki
• Meginreglur reikningsskila
• Lög og reglugerðir um bókhald
• Skipulag bókhaldsgagna, meðferð fylgiskjala.
• Handfært bókhald
• Lokun og uppgjör í handfærðu bókhald
• Gerð rekstrar- og efnahagsreiknings.
• Tölvufært bókhald, Dk • Kynning á öðrum bókhaldshugbúnaði
• Kynning á lokafærslum í bókhaldi
• Útreikningur og færsla lána í bóthald.
• Upplýsingalindir á netinu, heimasíða RSK, YSKN og fl.
• Helstu reglur um virðisaukaskatt og meðferð hans í bókhaldi
• Uppgjör vegna virðisaukaskatts og útfylling vsk. skýrslu
• Helstu reglur um staðgreiðslu og staðgreiðsluskil
• Útreikningur launa og gerð launaseðla
• Staðgreiðsluskil og útfylling skilagreina
• Kynning á helstu skattareglum um frádráttarbæran kostnað
• Helstu skattareglur í tengslum við uppgjör til skatts
• Kynning á helstu eyðublöðum skattyfirvalda vegna framtalsgerðar
Námið stendur yfir í 14 vikur og samsvarar 140 kennslustundum.
Verð kr. 88.000.- öll námsgögn innifalin.
Átt þú rétt á endurgreiðslu eða styrk frá þínu stéttarfélagi ?
Kannaðu málið !
Vegna eðlis fjarnáms þarf að greiða þátttökugjaldið áður en námskeið hefst. Skólagjöld/þátttökugjöld eru ekki endurgreidd, en nemendur geta átt þess kost að endursitja nám. Skráðir þátttakendur sem einhverra hluta vegna þurfa að gera hlé á námi t.d. vegna veikinda geta frestað náminu í allt að 12 mánuði.
|